Flakki.
Sækja Flakka
Til baka á forsíðu
LEIÐBEININGAR / LYKILORÐ

Komdu með lykilorðin.

Flyttu vistuð lykilorð úr Brave yfir í Flakka. Þú byrjar á að vista CSV-skrá úr Brave og velur hana svo í Flakka.

01 / Í BRAVE

Vistaðu lykilorðin í skrá.

  1. Opnaðu lykilorðastillingar Brave

    Smelltu í veffangastikuna, sláðu inn veffangið hér fyrir neðan og ýttu á Enter:

    brave://password-manager/settings
  2. Veldu útflutning

    Finndu Export passwords og veldu Download file. Staðfestu Windows Hello eða Windows-auðkenningu ef beðið er um það.

  3. Vistaðu CSV-skrána

    Veldu stað á tölvunni sem þú finnur aftur, til dæmis möppuna Niðurhal / Downloads. Skráin er aðeins notuð tímabundið við flutninginn.

02 / Í FLAKKA

Flyttu skrána inn.

  1. Opnaðu innflutning lykilorða

    Opnaðu Flakka. Sláðu þetta inn í veffangastikuna og ýttu á Enter:

    flakki://password-manager/settings

    Þetta er innra veffang í Flakka. Þú þarft ekki að opna annan vafra.

  2. Veldu CSV-skrána úr Brave

    Undir Import passwords velurðu Select file og finnur skrána sem þú vistaðir. Heitin geta birst sem Flytja inn lykilorð og Velja skrá.

  3. Staðfestu að flutningurinn hafi tekist

    Bíddu eftir niðurstöðu innflutningsins og athugaðu að vistuðu innskráningarnar birtist í lykilorðastjóranum. Ef einhverjar færslur flytjast ekki inn skaltu skoða niðurstöðuna áður en þú eyðir CSV-skránni.

03 / FLAKKI SYNC · FRÁ ÚTGÁFU 0.11.2

Geymdu leið til baka.

  1. Búðu til endurheimtarkóða meðan þú ert tengdur

    Opnaðu Prófíll og Sync, síðan Öryggi Flakki-aðgangs og veldu Búa til nýjan endurheimtarkóða. Staðfestu Windows Hello. Vistaðu kóðann á öruggum stað utan vafrans. Hann birtist aðeins í þessum glugga og nýr kóði ógildir þann fyrri.

  2. Breyttu lykilorði úr tengdum Flakka

    Í sama öryggishluta skaltu slá nýja lykilorðið inn tvisvar og velja Breyta lykilorði. Windows Hello staðfestir aðgerðina. Þú þarft ekki gamla lykilorðið; samstillingargögnin og tengingar annarra tölva haldast.

  3. Ef þú ert ekki lengur tengdur

    Veldu Gleymt lykilorð? á innskráningarsíðu Sync. Sláðu inn notandanafnið, vistaða endurheimtarkóðann og nýtt lykilorð tvisvar. Eftir endurheimt er kóðinn ógildur: búðu til nýjan þegar þú ert tengdur aftur.

Þú þarft bæði nýju Flakka-útgáfuna og uppfærða Sync-þjóninn fyrir þessar aðgerðir. Ef þú ert enn tengdur á annarri tölvu geturðu breytt lykilorðinu þar. Án tengds tækis eða áður vistaðs endurheimtarkóða er ekki hægt að endurheimta þessi dulkóðuðu Sync-gögn.

Nánar um útflutning: leiðbeiningar Brave.